Færsluflokkur: Bílar og akstur

Gyðingahatur í Evrópu

Það er skelfilegt að sjá gyðingahatur aukast aftur í Evrópu. Gyðingar drepnir í Danmörku, Frakklandi, Belgíu og víðar. Gyðingar eru byrjaðir að flýja álfuna.  Gott fólk verður að forðast að ýta undir þau öfl, sem leiða andófið gegn gyðingum og ríki þeirra.


Gyðingahatur í Evrópu

Það er skelfilegt að sjá gyðingahatur aukast aftur í Evrópu. Gyðingar drepnir í Danmörku, Frakklandi, Belgíu og víðar. Gyðingar eru byrjaðir að flýja álfuna. Gott fólk þarf að forðast að ýta undir þau öfl, sem leiða hatursherferð gegn gyðingum og ríki þeirra.

 


mbl.is Hvetur gyðinga til að flytja til Ísrael
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Rafstrengur til Bretlands

Eru Íslendingar að missa af tækifæri til verðmætasköpunar og að selja raforku á heimsmarkaðsverði?  Hví eru íslensk stjórnvöld ekki að vinna að lagningu rafstrengs til Evrópu?

Kostirnir virðast ótvíræðir: hærra verð fyrir innlenda raforku og aukið öryggi í raforkumálum.


mbl.is Nálægt samkomulagi um sæstreng
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

200 milljónir til Akureyrar

Ef Ríkissjóður á 200 milljónir til að styrkja byggð á Akureyri, setjum það í Sjúkrahúsið á Akureyri. Þessa peninga ættu að nýta til styrkja sjúkrahúsið frekar en að veikja Fiskistofu.


mbl.is Engin viðbrögð frá Sigurði Inga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Strætó á Keflavíkurflugvöll

Strætó fer um allt land, en ekki á  Keflavíkurflugvöll.  Strætó á flugvöllinn myndi gefa fyrirtækinu auknar tekjur og bæta þjónustu við landsmenn.
mbl.is Afþakkar tekjur af auglýsingum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Veiðum hval hvað sem það kostar

Það má varla á milli sjá hvort sjónarhornið er öfgafyllra. Annars vegar þeir sem líta á hvalinn sem heilaga kú, sem hvergi má snerta. Hins vegar Íslendingar, sem vilja veiða hval hvað sem það kostar og jafnvel þó það kosti þjóðarbúið meira en það skilar. 
mbl.is Herferð gegn hvalveiðum Íslendinga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvaða upplýsingar má birta um skóla?

Það er sjálfsagt að birta fjárhagsupplýsingar um einstaka skóla, en hvers vegna má ekki birta upplýsingar um árangur skólanna og nemenda þeirra? Nemendur og foreldrar þurfa upplýsingar til að meta gæði einstakra skóla.
mbl.is Flensborgarskóli verst staddur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

þetta samband sannar lítið

Rúmlega tíundi hver er varla regla. 41 af 47 áttu ekki systkini sem urðu svo gömul.
mbl.is Er langlífi ættgengt?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fulltrúar bænda fara í manninn

Fulltrúar bænda bregðast við gagnrýni með því að ráðast persónulega á gagnrýnandann og þá stofnun, sem hann starfar fyrir.  Stórmannlegra væri að bregðast málefnalega við.

Því miður er málstaður bænda erfiður. Íslenskur landbúnaður nýtur meiri ríkisstyrkja en tíðkast meðal flestra þjóða, þ.á.m. Evrópusambandsþjóða.  Íslenskir neytendur búa við skert viðskiptafrelsi og eitt hæsta matarverð í heimi.  Það er löngu tímbært að endurskoða íslenskan landbúnað, sem skerðir kjör neytenda í landinu og veitir bændum léleg kjör, að sögn.

 

Einar Stefánsson


mbl.is Þórólfur: Dæmir sig sjálft
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hornhimnulinsa

Þessi kona var blind vegna sjúkdóms, Stevens Johnson heilkennis, sem gerði hornhimnu augans ógegnsæja. Hornhimnan er glæri "glugginn" fremst á auganu, og gengur einnig undir heitinu "glæra". Nokkrar aðferðir eru til að festa gervilinsu í hornhimnuna í tilfellum sem þessum og er einni slíkri aðferð lýst í fréttinni.  Linsan er fest í hornhimnu augans, en ekki í augnbotninn, eins og ranglega segir í fréttinni. Augnbotninn er aftast í auganu, en hornhimnan fremst eins og vel má sjá á mynd sem fylgir fréttinni.

Hefðbundin hornhimnuflutningur er oft notaður til að veita sjón þeim sem eru blindir vegna ógegnsærrar hornhimnu. Hornhimnuflutningar hafa verið stundaðir á Íslandi í nær 30 ár og voru fyrstu og lengst af einu líffæraígræðslur á Íslandi. Slík aðgerð dugar hins vegar oft illa í Stevens Johnson heilkenni og er þá stundum gripið til gervi-hornhimnulinsa.

Wikipedia er með ágæta síðu um "Stevens Johnson syndrome" og má finna hana á Google.

 Einar Stefánsson


mbl.is Græddu tönn í auga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Einar Stefánsson

Höfundur

Einar Stefánsson
Einar Stefánsson
Yfirlæknir og prófessor í augnlækningum
Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband